FH Orkumótsmeistari 2026

27.06.2026

FH og Fram mættust í úrslitaleiknum um Orkubikarinn í ár. FH fór mikinn á mótinu og höfðu unnið alla sína leiki fyrir úrslitaleikinn, það varð engin breyting á í úrslitaleiknum þeir léku við hvurn sinn fingur og sigruðu Framara 4-1. Mörk FH í leiknum gerðu Finnborgi Kjartansson 3, Óttar Elí Friðbjörnsson 2 og Vignir Máni Halldórsson 1. Mark Framara gerði Nökkvi Reyr Hafsteinsson. Um leið og við þökkum gestum okkar fyrir komuna á mótið vonum við að allir okkar gestir fari með góðar minningar frá mótinu heim á leið, minningar sem eiga eftir að ylja um ókomin ár. Önnur úrslit og uppgjör mótsins má finna hér á síðunni.