Tónhylur Akademía á kvöldvökunni
19.05.2026Tónhylur Akademía mun koma fram á kvöldvöku Orkumótsins sem fer fram í íþróttahúsinu föstudagskvöldið 26. júní kl. 20:00
Tónhylur Akademía er sjálfstætt starfandi tónlistarhópur innan Tónhyls, en Tónhylur er tónlistarklasi í Árbæ. Í Tónhyl er blanda af starfandi tónlistarfólki og nýliðum en hugmyndin með því er að byggja upp samfélag þar sem reynslumeiri miðla reynslu sinni og þekkingu til þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref. Félagið leggur áherslu á að efla ungt tónlistarfólk, vieta þeim öflugt bakland og styðja það í sinni sköpun. Það gerir félagið m.a. með því að útvega fyrsta flokks aðstöðu, halda viðburði og bjóða uppá öfluga fræðslu.
Tónhylur heldur utan um aðstöðu fyrir atvinnufólk í skapandi greinum, Tónlistarhópinn Tónhyl Akademíu og TónhylX sem er samfélag ungra lagahöfunda.
Tónhylur hefur einnig gert bíómyndina "Undir ísnum".





