Flottir landsleikir og glæsileg kvöldvaka með Jóni Jónssyni

25.06.2022

Föstudagskvöldið fóru fram tveir landsleikir skipaðir fulltrúum frá öllum 38 félögunum á mótinu. Fyrirkomulagið er þannig að leiknir eru tveir leikir samhliða Landslið á móti Pressuliði, raðað er í liðin af handahófi. Úr varð hin besta skemmtun og mikil spenna í lokin en þannig fór að Landsliðið skoraði 7 mörk gegn 6 mörkum Pressunnar. Fyrir landsliðið skoruðu: Víkingur Hrafn Þórhallsson FH 2, Benedikt Andri J Andrason Víkingi R. 1, Aron Ingi Skarphéðinsson Álftanesi 1, Guðni Bent Helgason Tindastóli 1, Agnar Nóel Hallsson Breiðabliki 1 og Elmar Smári Hjartarson Hamri 1. Fyrir Pressuna skoruðu: Viktor Nóel Sveinsson Keflavík 2, Kári Steinn Ásgeirsson ÍR 1, Erik Máni Robertoson Breiðabliki 1, Hjalti Kiljan Friðriksson KFR 1 og Emil Ágúst Hilmarsson Haukum 1.

Eftir landsleik héldu vallargestir upp við íþróttamiðstöð þar sem Jón Jónsson tók við að skemmta peyjunum sem tóku vel undir í blíðunni og úr varð hin besta skemmtun.