Landsleikur, brekkusöngur og BMX Brós

26.06.2020

Það var líf og fjör hjá peyjunum í kvöld fyrst fóru fram landsleikir mótsins sem eru orðnir tveir vegna fjölda félaga þar mætast Landsliðið og Pressan og telja samanlögð úrslit úr leikjunum. Einvígið var jafnt og spennandi framan af þar til staðan var 2-2 eftir það voru Pressuleikmenn klókari fyrir framan markið og sigruðu leikinn. Fyrir Landsliðið skoruðu þeir Gunnar Vilhjálmur Guðjónsson Breiðabliki og Tryggvi Hrafn Haraldsson Þór Ak. sitt markið hvor en fyrir Pressuliðið skoruðu Sigurður Sigvaldi Jóhannssson KR 2, Atli Björn Sverrisson Fylki 2, Sigurður Nói Jóhannsson KA 2, Aron Gunnar Matus FH 1, Viktor Tumi Helgason Val 1, Grétar Gylfi Kristófersson Haukum 1. Að Landsleik loknum var kvöldvaka úti í veðurblíðunni við sundlaugina, þar var fyrst brekkusöngur og BMX Brós skemmtu síðan peyjunum eftir það. Myndasyrpa frá kvöldinu meðfylgjandi.