Mótsgjald 2019

13.05.2019

Eindagi fyrir mótsgjald 20.500.- kr. sem greiðist fyrir hvern þátttakenda er 17. maí, eftir það hækkar gjaldið í 21.500.- kr.

Þátttakendur eru:

  • Allir leikmenn
  • Allir þjálfarar og fararstjórar sem gista og eru í mat á vegum Orkumótsins

 

Gerð er krafa um að greitt sé fyrir 2 fullorðna á fyrstu 3 liðin og svo 1 fullorðinn á hvert lið umfram það.

Athugið að þetta er lágmark!

Dæmi:

  • Félag sem kemur með 1 lið borgar lágmark fyrir 2 fullorðna
  • Félag sem kemur með 2 lið borgar lágmark fyrir 4 fullorðna
  • Félag sem kemur með 3 lið borgar lágmark fyrir 6 fullorðna
  • Félag sem kemur með 4 lið borgar lágmark fyrir 7 fullorðna
  • Félag sem kemur með 5 lið borgar lágmark fyrir 8 fullorðna

Mótsgjaldið greiðist með millifærslu inn á reikn. 582-26-3234 kt. 680197-2029 og sendið kvittun á sigfus@ibv.is  

Í skýringu þarf að taka fram fyrir hvaða lið er greitt og fjölda strákar/þjálfarar/fararstjórar dæmi: (KR 20+3+3)

 

Einnig biðjum við ykkur um að senda fyrir 7. júní:

  • Nafnalista liðsstjóra fyrir hvert lið ásamt gsm númeri

 

Þegar allir hafa greitt mótsgjaldið getum við farið að raða niður í gistirými. Stærð gistirýma miðast við þann fjölda sem greitt hefur verið fyrir hjá hverju félagi.

Einnig viljum við minna þá sem eiga eftir að ganga frá Herjólfsferðum að drífa í því með því að senda póst á herjolfur@herjolfur.is

ATH! Kostnaður við Herjólfsferðir er ekki innifalið í mótsgjaldinu. Við tökum aðeins frá pláss í skipinu til að allir komist til og frá Eyjum